Ómótstæðilegur kjúklingaréttur með chilí rjómasósu, banana sneiðum og stökku beikoni
Ómótstæðilegur kjúklingaréttur með chilí rjómasósu, banana sneiðum og stökku beikoni
Ómótstæðilegur kjúklingaréttur með chilí rjómasósu, banana sneiðum og stökku beikoni
Ómótstæðilegur kjúklingaréttur með chilí rjómasósu, banana sneiðum og stökku beikoni

Innihaldslýsing

900 g kjúklingabringur
200 g beikon
2 bananar
200 ml Felix chilísósa, extra het
500 ml rjómi
1.5 dl salthnetur
salt
pipar
Þetta er kjúklingarétturinn með sérstaka nafnið en hann nefnist Fljúgandi Jakob. Sagan segir að heiðurinn af þessum rétti hafi sænskur maður að nafni Jacobsson átt sem hafi unnið í flugbransanum og þaðan sé þetta skemmtilega nafn komið. Hvað sem því líður þá er fljúgandi Jakob frábær kjúklingaréttur sem inniheldur dásamlega chilí rjómasósu, beikon og banana. Látið það óvenjulega hráefni ekki hræða ykkur því bananinn kemur með smá sætu án þess að vera afgerandi og setur hér punktinn yfir i-ið. Njótið vel!

Leiðbeiningar

1.Blandið chilísósu og rjóma saman í skál og blandið vel saman.
2.Steikið beikon þar til stökkt og skerið í bita.
3.Skerið kjúklinginn í bita og kryddið með salti og pipar. Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn á pönnunni.
4.Setjið kjúklinginn í ofnfast mót og beikonbitana yfir. Skerið banana í sneiðar og setjið yfir.
5.Hellið chilí rjómasósunni yfir allt og stráið salthnetum yfir allt.
6.Setjið í 200°c heitan ofn í 15 mínútur.

Í þennan rétt er hægt er að kaupa tilbúinn kjúklinginn og rífa niður til að flýta fyrir.

Færslan er styrkt.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.