Þessi uppskrift er vinsæl hjá flestum líka þeim sem eru almennt ekki hrifnir af kartöflusalati. Það er ferskt og virkilega bragðgott og hentar frábærlega með grillmat nú eða ekki grillmat – bara næstum öllum mat.
#samstarf28
1 kg soðnar kartöflur | |
3-4 soðin egg, skorin í bita (má sleppa en mér finnst voða gott að hafa eggin) | |
1 dós 5 % sýrður rjómi, t.d. frá Mjólka | |
4 msk léttmajones, t.d. frá Vogabær | |
safi úr 1 límónu | |
1 rauðlaukur, smátt skorinn | |
1 rauð paprika, skorin smátt | |
1 lime | |
3-4 msk sojasósa | |
hvítlaukskrydd | |
svartur pipar |
1. | Skerið kartöflurnar í tenginga og sjóðið í saltvatni. |
2. | Setjið öll hin hráefnin í skál og blandið vel saman. |
3. | Látið heita kartöflubitana út í blönduna og blandið vel saman. Smakkið til með sojasósu, hvítlaukskryddi og svörtum pipar. |
4. | Kælið í um 30 mínútur áður en borið fram. Stráið ferskri steinselju yfir allt og njótið. |

Leave a Reply