Innihaldslýsing

360 g hveiti
90 g OTA haframjöl
2 msk smjör
1 1/2 tsk salt
3 msk púðursykur eða hunang
2 tsk þurrger
1 1/4 bolli mjólk, fingurvolg
Ofaná:
1 eggjahvíta
1 msk kalt vatn
1-2 msk OTA haframjöl

Leiðbeiningar

1.Blandið öllum hráefnum saman í skál og blandið gróflega saman með sleif.
2.Hnoðið með höndunum eða í hrærivél þar til allt hefur blandast vel saman. Deigið á að vera klístrað svo ekki bæta við meira hveiti.
3.Látið deigið hefast í olíusmurðri skál í heitu rými í klukkustund.
4.Hnoðið með höndunum og látið í smurt brauðform. Látið hefast í um klukkustund.
5.Hrærið eggjahvítu og vatn saman og penslið brauðið. Stráið haframjöli yfir.
6.Látið í 175°c heitan ofn í 40 mínútur.
Færslan er unnin í samstarfi við OTA

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.