Deig: | |
180 ml volgt vatn | |
1 tsk þurrger | |
280 g hveiti | |
1 1/2 tsk ólífuolía | |
1 tsk sykur | |
1/2 tsk salt | |
Álegg: | |
250 g mozzarellaostur, sneiddur | |
30 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir gróflega | |
40 g svartar ólífur | |
180 g salatostur í kryddlegi frá Örnu | |
1 tsk basilíka | |
1 tsk oregano | |
1 msk fersk steinselja, söxuð | |
1 egg | |
1 msk vatn |
1. | Blandið fingurvolgu vatni og geri saman í skál. Hrærið varlega í 5 sek og látið standa þar til gerblandan er farin að freyða (ca. 5 mín). |
2. | Blandið 250 g af hveiti, salti og sykri saman í skál. |
3. | Látið ólífuolíu saman við gerblönduna og hrærið í nokkar mínútur. Hellið saman við hveitiblönduna og blandið gróflega saman við sleif. |
4. | Látið deigið á hveitistráð borð og hnoðið vel saman í um 5 mínútur. Setjið þá í skál og rakan klút yfir. Látið hefast í um 30 mínútur. |
5. | Hnoðið deigið lítillega og skiptið í tvo hluta og fletjið út. |
6. | Léttþeytið eggið og penslið endana á deiginu. |
7. | Dreyfið mozzarella yfir botnana. |
8. | Látið því næst sólþurrkuðu tómata, svartar ólífur og að lokum fetaost yfir allt. |
9. | Kryddið með basilíku og oregano. |
10. | Bakið í 210°c heitum ofni í 10-15 mínútur. |
11. | Stráið steinselju yfir og njótið vel. |
Leave a Reply