Innihaldslýsing

Deig:
180 ml volgt vatn
1 tsk þurrger
280 g hveiti
1 1/2 tsk ólífuolía
1 tsk sykur
1/2 tsk salt
Álegg:
250 g mozzarellaostur, sneiddur
30 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir gróflega
40 g svartar ólífur
180 g salatostur í kryddlegi frá Örnu
1 tsk basilíka
1 tsk oregano
1 msk fersk steinselja, söxuð
1 egg
1 msk vatn

Leiðbeiningar

1.Blandið fingurvolgu vatni og geri saman í skál. Hrærið varlega í 5 sek og látið standa þar til gerblandan er farin að freyða (ca. 5 mín).
2.Blandið 250 g af hveiti, salti og sykri saman í skál.
3.Látið ólífuolíu saman við gerblönduna og hrærið í nokkar mínútur. Hellið saman við hveitiblönduna og blandið gróflega saman við sleif.
4.Látið deigið á hveitistráð borð og hnoðið vel saman í um 5 mínútur. Setjið þá í skál og rakan klút yfir. Látið hefast í um 30 mínútur.
5.Hnoðið deigið lítillega og skiptið í tvo hluta og fletjið út.
6.Léttþeytið eggið og penslið endana á deiginu.
7.Dreyfið mozzarella yfir botnana.
8.Látið því næst sólþurrkuðu tómata, svartar ólífur og að lokum fetaost yfir allt.
9.Kryddið með basilíku og oregano.
10.Bakið í 210°c heitum ofni í 10-15 mínútur.
11.Stráið steinselju yfir og njótið vel.
Færslan er unnin í samstarfi við Örnu

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.