Innihaldslýsing

300 g hveiti
1 msk þurrger
1 tsk sykur
1/2 tsk salt
180 g fingurvolgt vatn
Uppáhalds einfalda pizzadeigið

Leiðbeiningar

1.Setjið gerið út í fingurvolgt vatnið og bætið sykri saman við. Geymið í 5-10 mínútur eða þar til gerið er uppleyst og farið að mynda loftbólur.
2.Setjið þurrefnin saman í skál og hellið gerblöndunni saman við og hnoðið vel saman.
3.Setjið plastfilmu eða viskustykki yfir skálina og látið hefast í 25 mínútur.
4.Hnoðið aftur og fletið út og toppið með ykkar uppáhalds áleggi.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.