Innihaldslýsing

3 bollar kasjúhnetur *
2 msk kókosolía, fljótandi
30 stk Gúllon súkkulaðikex + nokkrar til skrauts
250 ml kókosrjómi
2 msk sítrónusafi
* Það má líka nota sólblómafræ

Leiðbeiningar

1.Setjið hneturnar í heitt vatn og látið standa í um 1 klukkustund.
2.Takið 20 kexkökur og látið í matvinnsluvél ásamt kókosolíu og vinnið gróflega saman.
3.Setjið smjörpappír í botninn á 22 cm formi og látið kexmulninginn þar í. Þrýstið vel niður og látið í fyrstinn á meðan fyllingin er útbúin.
4.Takið hvíta kremið af kökunum 10 og geymið í sitthvorri skálinni hvíta og brúna hlutann af kexkökunni.
5.Fjarlægið hneturnar úr vatninu, þerrið lítillega og setjið í matvinnsluvél. Vinnið hneturnar vel saman í um 30 sekúndur. Bætið þá kókosrjóma, sítrónusafa og hvíta kreminu af kexkökunum saman við og vinnið vel saman.
6.Myljið helminginn af brúnu kexkökunum og bætið saman við og vinnið í smá stund. Setjið yfir kexbotninn.
7.Setjið hinn helminginn af brúnu kexkökunum yfir fyllinguna og látið í frysti í að minnsta kosti klukkustund.
8.Takið úr og skreytið með nokkrum Gúllon kexkökum.

Færslan er unnin í samstarfi við Icepharma

 

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.