Innihaldslýsing

1 ílangt grasker eða 2 sætar kartöflur
1 laukur
3 hvítlauksrif
1 epli
1 msk rautt karrý
1 msk púðursykur
6 dl vatn
2 grænmetisteningar frá Knorr
2-3 msk sítrónusafi
1 dl rjómi
salt og pipar
Matarmikil og holl súpa fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Skerið graskerið í teninga og látið á ofnplötu. Hellið 1/2 dl af ólífuolíu yfir graskerið og 1 msk af púðursykri. Blandið vel saman ásamt sá salti. Látið í 180°c heitan ofn í 30 mínútur.
2.Setjið olíu í pott og steikið söxuðum lauk, eplabitum og hvítlauk saman. Bætið rauðu karrý saman við.
3.Þegar graskerið er orðið mjúkt setjið í pottinn ásamt vatni og grænmetisteningum.
4.Blandið öllu vel saman með töfrasprota eða í blandara. Bætið rjóma saman við og smakkið til með sítrónusafa, rauðu karrí, salti og pipar.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Knorr

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.