Innihaldslýsing

2 dósir svartar baunir
1 msk ólífuolía
1/2 paprika, smátt skorin
1/2 laukur, smátt saxaður
3 hvítlauksrif, pressuð
1 1/2 tsk cumin
1 tsk chilí duft
1/2 tsk hvítlauksduft
1/4 tsk reykt paprika
1/2 bolli brauðrasp
1/2 bolli fetaostur
2 egg
1 msk worcestershire sósa
2 msk tómat- eða bbq sósa
salt og pipar
Gerir 4-6 buff

Leiðbeiningar

1.Hellið vökvanum frá baununum og leggið á ofnplötu með smjörpappír. Dreyfið vel úr og eldið við 150°c í 15 mínútur.
2.Setjið olíu í pott og steikið lauk, hvítlauk og papriku við vægan hita. Setjið í skál ásamt hinum hráefnunum og bætið að lokum svörtu baunum saman við. Stappið baunirnar lítillega og mótið í buff.
3.Ef deigið er of blautt bætið þá smá hveiti saman við.
4.Grillið eða látið í 190°c heitan ofn í 10 mínútur á hvorri hlið.
Færslan er unnin í samstarfi við Innnes

 

Uppskriftin er aðlöguð að uppskrift frá Sallys Baking Addiction

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.