

| 400 g heilhveiti | |
| 500 g hveiti | |
| 50 g OTA haframjöl | |
| 1 tsk salt | |
| 1 pakki þurrger | |
| 1/2 dl ólífuolía | |
| 2 1/2 dl mjólk | |
| 4 1/2 dl vatn | |
| Fylling | |
| 2 box skinkumyrja | |
| 500 g skinka | |
| 600 g rifinn ostur | |
| þurrkuð steinselja | |
| oregano | |
| egg, léttþeytt til penslunar | |
| sesamfræ |
Uppskriftin er frekar stór en hún gerir um 32 stk.
| 1. | Látið þurrefnin saman í skál. |
| 2. | Hitið mjólk og vatn þar til fingurvolgt og látið saman við og hnoðið í um 10 mínútur. |
| 3. | Látið hefast í 60 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldast í stærð. |
| 4. | Látið deigið á hveitistráð borð og skiptið í fjóra hluta. |
| 5. | Fletjið hvern hluta út í hring og skerið í 8 sneiðar (gott að nota pizzaskera). |
| 6. | Smyrjið með skinkumyrju og látið skinku og ost yfir og kryddið. Rúllið upp og látið hefast undir viskustykki í um 30 mínútur. |
| 7. | Penslið hornin með eggi og stráið sesamfræjum yfir. |
| 8. | Bakið í 210°c heitum ofni í 12-15 mínútur. |

Leave a Reply