Innihaldslýsing

400 g heilhveiti
500 g hveiti
50 g OTA haframjöl
1 tsk salt
1 pakki þurrger
1/2 dl ólífuolía
2 1/2 dl mjólk
4 1/2 dl vatn
Fylling
2 box skinkumyrja
500 g skinka
600 g rifinn ostur
þurrkuð steinselja
oregano
egg, léttþeytt til penslunar
sesamfræ
Uppskriftin er frekar stór en hún gerir um 32 stk.

Leiðbeiningar

1.Látið þurrefnin saman í skál.
2.Hitið mjólk og vatn þar til fingurvolgt og látið saman við og hnoðið í um 10 mínútur.
3.Látið hefast í 60 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldast í stærð.
4.Látið deigið á hveitistráð borð og skiptið í fjóra hluta.
5.Fletjið hvern hluta út í hring og skerið í 8 sneiðar (gott að nota pizzaskera).
6.Smyrjið með skinkumyrju og látið skinku og ost yfir og kryddið. Rúllið upp og látið hefast undir viskustykki í um 30 mínútur.
7.Penslið hornin með eggi og stráið sesamfræjum yfir.
8.Bakið í 210°c heitum ofni í 12-15 mínútur.
Færslan er unnin í samstarfi við OTA

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.