

| 6-7 perur | |
| 1 tsk vanilludropar | |
| 1 1/2 tsk kanill | |
| 1/4 tsk múskat | |
| 1/4 tsk salt | |
| Mulningur: | |
| 100 g smjör, við stofuhita | |
| 75 g hveiti | |
| 40 g OTA haframjöl | |
| 50 g sykur | |
| 100 g púðursykur | |
| 50 g pekanhnetur, saxaðar | |
| 1/4 tsk salt |
Eftirréttabökur eru hinn fullkomni eftirréttur. Hann er ofurauðvelt að gera og slær ávallt í gegn. Fyrir þá sem vilja má skipta út perum fyrir epli. Allt eftir hentugleik hvers og eins.
| 1. | Afhýðið perur og skerið í sneiðar. Látið í skál ásamt vanillu, kanil, múskati og 1/4 tsk salti. Blandið vel saman. |
| 2. | Hellið perunum í smurt eldfast mót. |
| 3. | Blandið smjöri, hveiti, haframjöli, sykri, púðursykri, pekanhnetum og salti saman í skál. Hnoðið vel saman með höndunum þar til deigið er orðið þétt í sér. Myljið yfir perurnar. |
| 4. | Bakið í 180°c heitum ofni í 45 mínútur eða þar til orðið brúnt á lit og stökkt. |
| 5. | Takið úr ofni og kælið í 5-10 mínútur. |
| 6. | Berið fram með rjóma, vanilluís og jafnvel karamellusósu. |

Leave a Reply