Innihaldslýsing

1-2 msk ólífuolía
1 kg kjúklingalæri
sjávarsalt og svartur pipar
Sósa:
2 hvítlauksrif, pressuð
1 msk ferskt timían
1 tsk muldar chilíflögur
180 ml kjúklingasoð
120 ml 36% rjómi frá Örnu
30 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
1/2 dl rifinn parmesan
Fersk basilíka
Þessi réttur sem kallast "Viltu giftast mér?" er einfaldur og ótrúlega bragðgóður!

Leiðbeiningar

1.Þerrið kjúklinginn með eldhúsbréfi og kryddið með salti og pipar.
2.Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn í 4-5 mínútur á hvorri hlið. Takið kjúklinginn til hliðar og hellið helming vökvans af pönnunni.
3.Steikið hvítlauk, timían og muldar chilíflögur í 1 mínútu.
4.Bæði kjúklingasoði, rjóma, sólþurrkuðum tómötum og parmesan og látið malla. Bætið kjúklingnum út á pönnuna fitan snýr upp..
5.Eldið í 180°c heitum ofni í 20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
6.Stráið saxaðri basilíku yfir réttinn og berið fram.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Örnu

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.