Innihaldslýsing

220g gróft lífrænt hnetusmjör frá Rapunzel
90g bragðlaus kókosolía frá Rapunzel
100g Cristallino hrásykur
90g púðursykur
2 tsk vanilludropar
130-150ml Oatly haframjólk ikaffe
200g hveiti
1 tsk matarsódi
¼ tsk sjávarsalt
160g 70% súkkulaði frá Rapunzel
Þessir klattar eru alveg ótrúlega bragðgóðir, einfaldir og fljótlegir. Allt í einni skál, óþarfi að kæla deigið og baksturstíminn er stuttur. Þeir eru vegan og henta því öllum sem forðast dýraafurðir og þeim sem eru annað hvort með mjólkur- eða eggjaofnæmi. Bragðlausa kókosolían frá Rapunzel er ótrúlega fjölhæf og hentar jafn vel í bakstur, hvort...

Leiðbeiningar

1.Hitið ofninn í 170°C blástur. Saxið súkkulaðið og klæðið 2 bökunarplötur með bökunarpappír.
2.Setjið hnetusmjör og kókosolíu í skál og pískið saman. Setjið sykur, vanilludropa og 130ml af haframjólkinni saman við og hrærið.
3.Sigtið hveitið, matarsódann og saltið yfir og skiptið yfir í sleif og hrærið saman þar til deigið verður samfellt. Ef deigið er of þurrt má setja örlítið í viðbót af haframjólkinni.
4.Setjið þá súkkulaðið saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
5.Setjið deigið á plötuna með ískúlu skeið eða 2 matskeiðum. Bakið klattana í ca. 10 mín, fylgist samt vel með, ofnar geta verið mjög misjafnir.
6.Ég fékk ca. 30 klatta úr uppskriftinni og þeir þola vel að vera settir í frysti.

Þessir klattar eru alveg ótrúlega bragðgóðir, einfaldir og fljótlegir. Allt í einni skál, óþarfi að kæla deigið og baksturstíminn er stuttur. Þeir eru vegan og henta því öllum sem forðast dýraafurðir og þeim sem eru annað hvort með mjólkur- eða eggjaofnæmi. Bragðlausa kókosolían frá Rapunzel er ótrúlega fjölhæf og hentar jafn vel í bakstur, hvort sem er smákökur eða annað bakkelsi, hvet ykkur til að prófa hana næst þegar á að baka eitthvað gómsætt.

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.