Innihaldslýsing

175g hveiti
130g púðursykur
3 msk kakó frá Nóa Síríus
1 tsk lyftiduft
½ tsk matarsódi
½ tsk salt
1dl súrmjólk
120ml nýmjólk
1 tsk vanilludropar
1dl jurtaolía
1 egg
65g saxað suðusúkkulaði frá Nóa Síríus
Þessi kaka er algjörlega stórkostleg og tekur ekki langan tíma að gera. Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi þessarar tvennu, súkkulaðis og hnetusmjörs og þessi kaka uppfyllir algerlega allar mínar væntingar. Kakan sjálf er alveg lungamjúk með góðu súkkulaðibragði og kremið er létt með áberandi keim af hnetusmjörinu. Ég nota kakóið frá Nóa Síríus í...

Leiðbeiningar

1.Hitið ofninn í 175°C blástur.
2.Setjið öll þurrefni saman í skál og hrærið í með sleif. Setið þá súrmjólk, nýmjólk, vanilludropa, olíu og egg saman við og hrærið þar til deigið er slétt og samfellt. Bætið þá söxuðu súkkulaðinu saman við.
3.Smyrjið eða klæðið með bökunarpappír, ferkantað 20x20cm form eða 22 cm hringlaga form. Hellið deiginu út í og bakið í 20-25 mín ca. Fer eftir ofnum en kakan er tilbúin þegar prjóni sem stungið er í hana kemur hreinn út.
4.Kælið kökuna alveg.
5.Útbúið kremið og smyrjið á kalda kökuna. Stráið söxuðu suðusúkkulaði yfir kremið og jafnvel salthnetum ef þið eigið þær til.

Þessi kaka er algjörlega stórkostleg og tekur ekki langan tíma að gera. Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi þessarar tvennu, súkkulaðis og hnetusmjörs og þessi kaka uppfyllir algerlega allar mínar væntingar. Kakan sjálf er alveg lungamjúk með góðu súkkulaðibragði og kremið er létt með áberandi keim af hnetusmjörinu. Ég nota kakóið frá Nóa Síríus í botninn ásamt klassíska suðusúkkulaðinu og sú tvenna er ekkert minna en stórkostleg í svona súkkulaðikökubakstur.

Þessa verðið þið bara að prófa en vara ykkur við, hún er fljót að klárast!

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Nóa Síríus.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.