Innihaldslýsing

2 dósir íslensk kjötsúpa frá Ora
300g beinlaust lambakjöt í bitum
Gulrætur, kartöflur, rófur eða soðin hrísgrjón
Salt og pipar
Nú er þorrinn nýhafinn og við sem elskum ekki beint súrmat en langar í eitthvað fljótlegt og þjóðlegt getum skellt í þessa súpu í staðinn. Hérna nota ég íslensku kjötsúpuna frá Ora til viðbótar við afganga sem ég átti til og úr varð þessi veislumáltíð. Ég átti afgang af lambakjöti og ákvað að nota það...

Leiðbeiningar

1.Setjið súpuna í pott og bætið við þeim afgöngum sem þið viljið nota, hvort sem það er kjöt, grænmeti eða hvorutveggja.
2.Smakkið til með salti og pipar og berið jafnvel fram með góðu brauði.

Nú er þorrinn nýhafinn og við sem elskum ekki beint súrmat en langar í eitthvað fljótlegt og þjóðlegt getum skellt í þessa súpu í staðinn. Hérna nota ég íslensku kjötsúpuna frá Ora til viðbótar við afganga sem ég átti til og úr varð þessi veislumáltíð. Ég átti afgang af lambakjöti og ákvað að nota það út í súpuna ásamt afgangs grænmeti en það er þó algjört smekksatriði hvort þið viljið bæta við grænmetið. Súpan er frábær eins og sér en býður einnig upp á að hægt sé að bæta við hana afgangs kjöti, grænmeti eða hrísgrjónum sem annars yrði jafnvel hent. Held að það sé óhætt að segja að fljótlegri gerist kvöldmaturinn varla!

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Ísam ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.