250 g smjör | |
250 g 70% súkkulaði frá Rapunzel | |
4 egg | |
1/2 tsk salt | |
150 g sykur | |
150 g púðursykur | |
2 tsk vanilludropar | |
150 g hveiti |
Brúnkur sem slá í gegn!
1. | Bræðið smjör og súkkulaði í potti við vægan hita. Kælið lítillega. |
2. | Hrærið egg, sykur og púðursykur saman þar til blandan er orðin létt og ljós. Bætið vanilludropum saman við og hrærið áfram. |
3. | Hellið súkkulaðismjörinu saman við og hrærið. |
4. | Hrærið að síðustu hveiti saman við í örstutta stund. |
5. | Setjið smjörpappír í ca 23x33 cm form og hellið deiginu þar í. |
6. | Bakið í 160°c heitu ofni í um 40 mínútur. Við viljum að kakan sé smá blaut því þannig er hún best. |
Leave a Reply