Innihaldslýsing

2 pakka af fersku tagliatelle pasta (fæst í Bónus og Hagkaup, ljúffengt að nota ferskt pasta í þennan rétt og gerir hann að lostæti)
500 g skelflettur humar frá Norðanfiski (láta hann þiðna ef hann er frosinn)
5 hvítlauksrif söxuð eða tveir litlir hvítlaukar
1-2 sítrónu bátar fer eftir stærð
2-3 stk. ferskt rautt chili, saxað
1 búnt af íslenskri steinselju, gróft söxuð
¼ búnt fersk basilika, saxa hluta og nýta nokkur heil blöð til að toppa réttinn.
½ l rjómi
Hvítur pipar
Ólífuolíu til steikingar
Örlítið smjör til að steikja humarinn upp úr
Parmesan ostur til að bragðbæta og skreyta í lokin
Þeir sem vilja geta bragðbætt með hvítvíni
Sjöfn Þórðardóttir fjölmiðlakona og þáttastjórnandi þáttarins Matur & Heimili með Sjöfn Þórðar á sjónvarpsmiðlinum Hringbraut deilir hér með okkur einni af sinni uppáhalds uppskrift. Sjöfn er mikill matgæðingur og ástríðukokkur og veit fátt skemmtilegra en að bjóða sínum nánustu til matarveislu. „Ég nýt mín í botn í eldhúsinu við að undirbúa ljúffengan mat og kræsingar...

Leiðbeiningar

1.Byrjið á því að hita olífuolíu á pönnu meðal stórri pönnu. Þegar olían hefur hitnað steikja hvítlauk, chili, og ¼ af steinseljubúntinu saxað, þar til það verður mjúkt. Síðan er humarinn léttsteiktur upp úr þessari blöndu og kryddaður með örlitlum hvítum pipar. Humarinn tekinn af pönnunni og settur í skál til hliðar en grænmetið skilið eftir á pönnunni.
2.jómanum hellt út á pönnuna og suðan látin koma upp. Þá er hitinn lækkaður og sósan látin malla í um það bil 10 mínútur, síðan hvítvíni bætt út í en má sleppa. Ég er ekki alltaf með hvítvín og sósan er ljúffeng án þess líka.
3.Kreistið einn sítónubát út í rjómasósuna. Setjið vatn yfir fyrir pastað í pott og bíðið eftir að suða komi upp. Setjið pastað út í vatnið og sjóðið í um það bil 3 mínútur. Hellið vatninu af og setjið pastað síðan á diska eða í skálar sem þið ætlið að framreiða réttinn í. Mjög gott að setja smá ólífuolíu yfir pastað.
4.Bætið humrinum út í rjómasósuna, en skilið eftir nokkrar hala til setja ofan réttinni í lokin, á meðan pasta sýður og látið malla í um það bil 2-3 mínútur.
5.Síðan er humarpastasósunni dreift yfir pastaði á diskunum eða í skálunum með ausu eða skeið á fallegan hátt. Skreytt og bragðbætt með humahölum, rifnum parmesanosti og ferskri steinselju og basiliku.
6.Mjög gott að bera fram með heitu naan brauði með smjöri, grófu himalaya salti og oreganó og/eða súrdeigssnittubrauðið og þeyttu smjöri ásamt grófu himalaya salti eða saltflögum. Njótið vel.

Sjöfn Þórðardóttir fjölmiðlakona og þáttastjórnandi þáttarins Matur & Heimili með Sjöfn Þórðar á sjónvarpsmiðlinum Hringbraut deilir hér með okkur einni af sinni uppáhalds uppskrift. Sjöfn er mikill matgæðingur og ástríðukokkur og veit fátt skemmtilegra en að bjóða sínum nánustu til matarveislu.

Sjöfn Þórðardóttir, Fasteignir og heimili, Heimili og matarást Sjafnar, Hringbraut

„Ég nýt mín í botn í eldhúsinu við að undirbúa ljúffengan mat og kræsingar fyrir mína nánustu og gesti. Þegar kemur að matargerð og bakstri þá legg ég mikið upp úr því að framreiða matinn á fallegan hátt og aðrar kræsingar enda borðum við flest öll fyrst með augunum, svo með munninum. Ég dekka til að mynda ávallt upp fallegt borð og skreyti á einfaldan og stílhreinan hátt í stíl við árstíðirnar að hverju sinni, til dæmis með lifandi blómum og huggulegu kertaljósi. Þegar ég held matarboð þá fer ég alla leið og vil hafa alla umgjörðina aðlaðandi.“

„Þetta humarpasta er í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni og gestum og bræðir bragðlaukana. Þegar ég gerði það í fyrsta skipti, þá notaði ég ferskt tagliatelle frá Kaju en Karen Jónsdóttir hjá Matarbúri Kaju framleiddi það á tímabili og er það eitt besta pasta sem ég hef nokkrun tímann bragðað. Það væri bæði lífrænt og umhverfisvottað. Því miður er það ekki fáanlegt núna en vonandi fljótt aftur, ef fólk vissi bara hve gott það er. En það er til dásamlega ljúffengt tagliatelle pasta í Bónus sem er fullkomið í þennan rétt og ég mæli með því að nota ferskt pasta það er svo margfalt betra.“

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.