Innihaldslýsing

3/4 bolli bragðlaus kókosolía frá Rapunzel
3/4 bolli rapadura hrásykur frá Rapunzel
1/2 tsk lífrænt vanilluduft
1 bolli lífrænt hveiti
1/2 bolli hafrar fínir frá Rapunzel
1/2 bolli hafrar grófir frá Rapunzel
1 tsk matarsódi
1/2 tsk sjávarsalt
2 stk karamellusúkkulaði frá Rapunzel
Við höfum nú oft rætt það að allt sem bakað er með höfrum er gott! Og það toppar fátt hafrabakstur með viðbættu súkkulaði. Þessir bitar eru algjörlega himneskir og ekki erfitt að útbúa þá. Ég nota ferkantað form sem er 20x20cm en þannig finnst mér ég fá sem jafnasta bita. Súkkulaðið sem ég nota í...

Leiðbeiningar

1.Bræðið kókosolíuna yfir vægum hita í meðalstórum potti. Bætið við hrásykri og vanillu og hrærið.
2.Setjið hveiti, haframjöl, salt og matarsóda út í pottinn og hrærið með sleif þar til deigið er samfellt.
3.Saxið súkkulaðið smátt.
4.Setjið bökunarpappír í 20x20cm form og dreifið helmingnum af deiginu í botninn. Þjappið aðeins. Dreifið súkkulaðinu jafnt yfir og setjið svo hinn helminginn af deiginu yfir.
5.Bakið í 25 mín. Kælið alveg áður en kakan er skorin í bita.

Við höfum nú oft rætt það að allt sem bakað er með höfrum er gott! Og það toppar fátt hafrabakstur með viðbættu súkkulaði. Þessir bitar eru algjörlega himneskir og ekki erfitt að útbúa þá. Ég nota ferkantað form sem er 20x20cm en þannig finnst mér ég fá sem jafnasta bita. Súkkulaðið sem ég nota í bitana er mitt allra besta uppáhalds eða karamellu súkkulaðið frá Rapunzel. Það er fátt sem toppar þetta súkkulaði og gott hvort sem er með góðu kaffi eða í bakstur.

Bio-Product: Milk chocolate with creamy caramel filling, HAND IN HAND - Rapunzel Naturkost

 

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.