
Þessi færsla er unnin í samstarfi við

| 3 eggjahvítur | |
| 3 eggjarauður | |
| 75 g sykur | |
| 1 vanillustöng | |
| 250 ml 36% rjómi frá Örnu | |
| 100 g marsipan | |
| 75 g möndlur, smátt saxaðar | |
| 75 g dökkt súkkulaði, saxað | |
| kirsuberjasósa |
| 1. | Skál 1: Byrjið á að þeyta rjómann. Geymið. |
| 2. | Skál 2: Þeytið eggjahvíturnar og bætið helming af sykrinum saman við smátt og smátt. Hrærið þar til eggjahvíturnar eru orðnar eins og marengs á þykkt. |
| 3. | Skál 3: Þeytið eggjarauðurnar með helming af sykrinum og fræjum úr vanillustönginni. Þeytið þar til blandað er orðin létt og ljós. |
| 4. | Setjið eggjahvíturnar og rjómann saman við eggjarauðublönduna varlega saman við sleif. |
| 5. | Blandið marsipan, möndlum og súkkulaðinu þá einnig varlega saman við með sleif. Setjið í form og setjið smá af kirsuberjasósu yfir ísinn. Takið gaffal og blandið kirsuberjasósunni varlega saman við ísinn. |
| 6. | Setjið lok eða filmu yfir ísinn og látið í frysti í að minnsta kosti 12 klst. |

Þessi færsla er unnin í samstarfi við
Leave a Reply