Innihaldslýsing

500 g hveiti (eftir þörfum)
250 g sykur
200 g smjör
1 tsk hjartarsalt
1 1/2 tsk lyftiduft
2 dl mjólk
Ég kalla þessa snúða neyðarsnúða því þegar mig langar í eitthvað sætt strax þá er svo einfalt að skella í þessa.

Leiðbeiningar

1.Setjið þurrefnin í skál. Skerið smjörið í bita og hnoðið saman við.
2.Bætið mjólk saman við og hnoðið vel. Bætið við hveiti eftir þörfum eða þar til það loðir ekki við fingurna.
3.Skiptið deiginu í tvo helminga og fletjið út. Penslið með mjólk og blandið sykri og kanil saman og stráið yfir mjólkina.
4.Rúllið upp og skerið í 2 cm bita. Látið þá á ofnplötu.
5.Bakið í 170°c heitum ofni í um 15 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir á lit.
Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi en koma af vefnum eldhus.is og hétu þar Kanilsnúðar Fíu.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.