Tilbúið
30 mínúturErfiðleiki
EinfaltQuinoa
3/4 bolli kínóa
1 2/3 bolli vatn
1 msk grænmetiskraftur frá Oscar
1 dós kjúklingabaunir
1 msk sesamolía frá Blue dragon
1 msk fínrifið engifer
2-3 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk karrý
1 tsk turmeric
sjávarsalt og svartur pipar
Látið vatn og kínóa saman í pott og hitið að suðu. Setjið þá á lágan hita í 15 mínútur. Slökkvið undirhitanum og látið lok á pottinn. Eftir 5-15 mínútur er kínóa fulleldað. Látið í skál ásamt sesamolíu og kryddum. Bætið þá hinum hráefnunum saman við og endið á að toppa með kasjúhnetum.
Sett saman við
1 rauð paprika, skorin í smá bita
1 gulrót, skorin í þunna strimla
1-2 dl grænar baunir, keyptar frosnar en afþýddar
1 dl þurrkuð trönuber
1/2 rauðlaukur, smátt saxaður
1/2 búnt steinselja, söxuð
1/2 búnt kóríander, saxað
1/2 chilí, saxað
safi úr 1/2 límónu
Spicy kasjúhnetukurl
200 g kasjúhnetur
1 msk hlynsíróp
1/2 tsk cayenne pipar
sjávarsalt
Þurrristið kasjúhnetur á pönnu. Þegar þær eru farnar að ilma og byrjaðar að brúnast, slökkvið á hitanum og bætið þá hlynsírópi, cayanne og sjávarsalti saman við. Hrærið þessu saman í 30 sekúndur og kælið lítillega.
Leave a Reply