Þessi færsla er unnin í samstarfi við Vogabæ.
3 kjúklingabringur | |
250 g blandað salat | |
200 g kirsuberjatómatar, skornir í tvennt | |
5 sneiðar parmaskinka | |
50 g pekanhnetur | |
2 msk sykur | |
parmesanostur | |
brauðteningar |
Fyrir 4
1. | Hitið olíu á pönnu. Kryddið kjúklinginn með salti og pipar og brúnið á báðum hliðum. Setjið í ofnfast mót og í 175°c heitan ofn þar til þær eru eldaðar í gegn. |
2. | Setjið sykur á þurra pönnu og bræðið. Saxið pekanhnetur gróflega og setjið út á pönnuna og húðið með sykurbráðinni. Hrærið í hnetunum í 2-3 mínútur og takið af pönnunni. |
3. | Setjið parmaskinkuna í ofn í 10 mínútur eða þar til hún er orðin stökk. Kælið og brjótið niður í bita. |
4. | Hrærið hráefnunum fyrir parmesanostasósuna vel saman í skál. |
5. | Blandið salatinu saman og skerið kjúklinginn niður í sneiðar og setjið yfir ásamt parmaskinku, brauðteningum og sykruðum hnetum. Endið á að hella sósunni yfir salatið og blandið vel saman. |
Leave a Reply