Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.
700 g kjúklingalæri, frá Rose Poultry | |
kókosolía | |
2-3 tsk rautt karrý mauk, t.d. frá Blue dragon | |
3 dl kókosmjólk, frá Blue dragon | |
3 dl rjómi | |
6 msk gróft hnetusmjör | |
4 msk soyasósa, t.d. Blue dragon | |
safi úr 1-2 límónum | |
salt |
1. | Skerið kjúklinginn í litla bita. |
2. | Hitið kókosolíu á pönnu og steikið kjúklinginn. |
3. | Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið 1 msk af kókosolíu á pönnuna. |
4. | Hitið karrý á pönnunni og bætið þá kókosmjólk, rjóma, hnetusmjöri, soyasósu og límónusafa út í. |
5. | Látið malla við vægan hita í nokkrar mínútur eða þar til sósan hefur þykknað. |
6. | Bætið kjúklingnum saman við og hitið. Smakkið til með salti. |
7. | Setjið á disk og stráið salthnetum yfir. |
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.
Leave a Reply