120 ml hot sauce t.d. Frank's | |
150 g púðursykur | |
2 tsk hvítlauksduft | |
1 msk sojasósa | |
3 tsk hrísgrjónaedik (eða eplaedik) | |
4 kjúklingabringur eða 6 kjúklingalæri | |
salt og pipar | |
1 bolli sterkja, t.d. kartöflumjöl eða hveiti | |
ólífuolía, til steikingar | |
sesamfræ, ristuð | |
vorlaukur, saxaður | |
hrísgrjón |
Þessi uppskrift er fyrir 3-4 en ég mæli með að tvöfalda sósuna og bæta við kjúklingi því þið munuð vilja eiga nóg af þessum kjúklingarétti.
1. | Látið hot sauce, púðursykur, hvítlauksduft, edik og 2 msk vatn saman í pott og látið malla við vægan hita eða þar til sykurinn er bráðinn. Takið af hitanum og geymið. |
2. | Kryddið kjúklinginn ríflega með salti og pipar á öllum hliðum og veltið honum upp úr sterkjunni. Hitið um 1 dl af olíu á pönnunni og brúnið kjúklinginn í 3-4 mínútur á báðum hliðum. |
3. | Þegar kjúklingurinn er orðinn gylltu á lit, lækkið hitann og hellið sósunni yfir og látið kjúklinginn malla í 5-8 mínútur. |
4. | Stráið sesamfræjum og vorlauk yfir og berið fram með hrísgrjónum. |
Leave a Reply