Innihaldslýsing

700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry
3 msk ólífuolía, t.d. extra virgin oil frá Filippo Berio
4 msk smjör
2 hvítlauksrif
500 ml matreiðslurjómi
salt og pipar
500 g spagettí
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Blandið saman hráefnunum í kryddblönduna. Setjið kjúklinginn í skál ásamt 1 msk af ólífuolíu og hellið kryddblöndunni saman við. Nuddið kryddinu vel inn í kjúklinginn.
2.Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
3.Hitið 2 msk af smjöri á pönnu og steikið kjúklingalundirnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær eru fulleldaðar. Takið kjúklinginn af pönnunni, setjið á disk og álpappír yfir til að halda hita á kjötinu.
4.Bætið 2 msk af smjöri út á pönnuna ásamt hvítlauk, steikið í 1 mínútu og hrærið stöðugt á meðan. Hellið rjómanum hægt saman við og hrærið vel. Látið malla í 5 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna. Saltið og piprið.
5.Hellið soðnu spagettí út á pönnuna og veltið því upp úr sósunni. Berið strax fram með kjúklingalundunum.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.