Innihaldslýsing

1 dl möndlur eða heslihnetur
75 g smjör við stofuhita
1 1/2 dl OTA haframjöl
1 dl kókosmjöl
1/2 dl flórsykur
1 1/2 msk kakó
1 vanillustöng eða 1 tsk vanilluduft
1 msk vatn eða kaffi
1 msk rjómi
Gerir 30 stk

Leiðbeiningar

1.Ristið hneturnar og kælið. Malið gróflega.
2.Látið öll hráefnin nema hneturnar í skál og blandið vel saman.
3.Mótið í kúlur og veltið þeim upp í hnetukurlinu.
4.Geymið í kæli.
Færslan er unnin í samstarfi við OTA

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.