Innihaldslýsing

500 g kjúklingabringur
1 laukur
3 hvítlauksrif
1 tsk chilíflögur
1 tsk paprika
1,5 tsk karrý
salt og pipar
1 teningur kjúklingakraftur
1 dl vatn
500 ml 36% rjómi frá Örnu
400 g pastasósa
12 lasagnaplötur
80 g spínat
1 kúla ferskur mozzarella

Leiðbeiningar

1.Hitið olíu á pönnu.
2.Skerið lauk og hvítlauk smátt og steikið.
3.Skerið kjúkling í bita og setjið saman við. Brúnið kjúklinginn.
4.Bætið kryddum saman við og blandið öllu vel saman.
5.Látið pastasósu, kjúklingatening, vatn og rjóma saman við allt.
6.Látið malla í 5-10 mínútur við lágan hita.
7.Bætið spínati saman við og smakkið til með salti og pipar.
8.Penslið botninn á ofnföstu móti með olíu.
9.Látið smá af sósunni (bara sósu ekki kjöt) í botninn á sósunni. Leggið pastaplötur yfir.
10.Látið þá kjötsósuna yfir plöturnar og plötur yfir það og svo koll af kolli.
11.Látið í 200°c heitan ofn í 25 mínútur.
12.Takið þá úr ofni og látið mozzarella yfir allt. Látið í ofn í 10 mínútur.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Örnu

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.