Við mælum með hágæða kryddum frá Kryddhúsinu.
1 tsk kóríander fræ | |
2 tsk svört piparkorn | |
1/2 tsk fennel fræ | |
4 fenugreek fræ | |
3-4 þurrkuð chilí | |
4 msk olía, t.d. extra virgin Philippo Berio | |
200 g laukur, skorinn smátt | |
40 g ferskt engifer, rifið fínt | |
12 hvítlauksrif, pressuð | |
800 g lambakjöt, skorið í bita | |
4 msk tómat púrre | |
300 ml kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon | |
1/2 tsk salt | |
1/4 tsk garam masala |
Fyrir 4
1. | Setjið kóríander fræin, svört piparkorn, fennelfræ, fenugreek fræ og þurrkuð chilí saman á pönnu og ristið við vægan hita þar til þau fara að ilma. |
2. | Setjið kryddin í mortel og malið. Takið til hliðar og geymið. |
3. | Setjið olíu í pott og steikið laukinn þar til hann er farinn að taka lit. |
4. | Bætið hvítlauk og engifer saman við og steikið í nokkrar mínútur til viðbótar. |
5. | Bætið lambakjötinu í pottinn og steikið í 5 mínútur og hrærið reglulega í blöndunni. |
6. | Látið tómat púrru, kókosmjólk, kryddblönduna og salt og látið malla í um klukkustund við lágan hita. |
7. | Takið lokið af pottinum og látið malla aðeins áfram til að minnka vökvann. |
8. | Berið fram með hrísgrjónum og naan. |
Leave a Reply