Með þessum rétt finnst mér ómissandi að hafa cous cous, hrísgrjón eða bygg því þau verða svo góð þegar þeim er blandað við sósuna sem er á kjúklingum. Ásamt því hef ég alltaf salat því það er hollt og gott fyrir okkur öll.

| 700 gr eða einn poki úrbeinuð kjúklingalæri | |
| 150 gr Mango Chutney | |
| 200 gr Kókosmjólk - Bæði vökvi og harði hlutinn af henni sem er oft búinn að myndast efst í dósinni | |
| 1/2 msk Karrý |
| 1. | Skerið kjúklingalæri í munnbita. |
| 2. | Setjið á heita pönnu, kryddið með karrý og steikið í 8 mínútur |
| 3. | Blandið saman kókosmjólk og mango chutney. Ég set þetta saman í stóra krukku og hristi saman. |
| 4. | Hellið þessu yfir pönnuna með kjúklingnum og leyfið að malla með loki á í 7 mínútur |

Leave a Reply