

| 4 kjúklingabringur Rose poultry | |
| 2 msk ólífuolía | |
| 250 ml rjómi | |
| 1/2 dl Hot chilí sauce frá Heinz (eða Heinz chilí sauce fyrir mildari rétt) | |
| 1 msk oregano | |
| 1 tsk kjúklingakraftur frá Oscars | |
| 1 dl rifinn ostur | |
| salt og pipar |
Fyrir 4
| 1. | Hitið olíu á pönnu. Skerið kjúklinginn í bita, saltið og piprið og steikið á pönnu. Takið af pönnu og látið í ofnfast mót. |
| 2. | Setjið rjóma, chilísósu og oregano í pott og hitið. Saltið og piprið að eigin smekk. |
| 3. | Hellið sósunni yfir kjúklinginn og stráið rifnum osti yfir allt. |
| 4. | Hitið í 210°c heitum ofni í 15 mínútur. |
| 5. | Berið fram með hrísgrjónum/tagliatelle og salati. |

Leave a Reply