Innihaldslýsing

4 kjúklingabringur Rose poultry
2 msk ólífuolía
250 ml rjómi
1/2 dl Hot chilí sauce frá Heinz (eða Heinz chilí sauce fyrir mildari rétt)
1 msk oregano
1 tsk kjúklingakraftur frá Oscars
1 dl rifinn ostur
salt og pipar
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Hitið olíu á pönnu. Skerið kjúklinginn í bita, saltið og piprið og steikið á pönnu. Takið af pönnu og látið í ofnfast mót.
2.Setjið rjóma, chilísósu og oregano í pott og hitið. Saltið og piprið að eigin smekk.
3.Hellið sósunni yfir kjúklinginn og stráið rifnum osti yfir allt.
4.Hitið í 210°c heitum ofni í 15 mínútur.
5.Berið fram með hrísgrjónum/tagliatelle og salati.
Þessi uppskrift er unnin í samvinnu við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.