200 g makkarónur (eða hafrakex) | |
4 msk ljós púðursykur | |
120 g smjör, brætt | |
500 ml rjómi | |
400 g Philadelphia rjómaostur | |
10 msk sykur | |
1/2 tsk salt | |
1 msk sítrónusafi | |
2 tsk vanillusykur | |
70 g Oreo kexkökur, muldar |
Oreo cookies & cream eftirréttur
1. | Bræðið smjör í potti. Myljið makkarónur niður og blandið saman við sykurinn og síðan brætt smjörið. |
2. | Léttþeytið rjómann og setjið til hliðar. |
3. | Hrærið rjómaostinn, salt, sykur, vanillusykur og sítrónusafa saman i skál og þeytið í 5 mínútur. |
4. | Bætið rjómanum saman við rjómaostablönduna og hrærið lítillega saman. |
5. | Setjið í form og frystið í að minnsta kosti 6 klst. |
Leave a Reply