Þessi eftirréttur er fyrir okkur, forföllnu Oreo aðdáendurna. Ekki nóg með það er hann einnig tilvalinn fyrir þá sem vilja henda í eitthvað gúrm á stuttum tíma. Eftirréttinn má gera með góðum fyrirvara og verður bara betri ef eitthvað er sólahring síðar.
Þessi eftirréttur er fyrir okkur, forföllnu Oreo aðdáendurna. Ekki nóg með það er hann einnig tilvalinn fyrir þá sem vilja henda í eitthvað gúrm á stuttum tíma. Eftirréttinn má gera...
1. | Myljið Oreo kex í matvinnsluvél og takið smá frá til skrauts. Setjið í botninn á glösum/krukkum. |
2. | Þeytið allan rjómann 6 dl (3+3 dl) með vanillusykri. Skiptið jafnt í 2 skálar og kælið. |
3. | Gerið súkkulaðimúsina og bræðið súkkulaðið í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði. |
4. | Hrærið flórsykri saman við súkkulaði og hrærið stöðugt í á meðan. |
5. | Þeytið eggjarauðurnar í hrærivél eina í einu þar til þær eru orðnar að þykku kremi. |
6. | Hrærið þá kreminu varlega saman við súkkulaðið. |
7. | Deilið súkkulaðimúsinni á glösin. |
8. | Setjið rjóma yfir og Oreo mulning yfir allt. |
Leave a Reply