Innihaldslýsing

1/4 bolli kínóa (ekki eldað)
1 tsk kókosolía
1 tsk hlynsíróp
3/4 bolli mjúkt hnetusmjör
2 msk hlynsíróp
1 tsk vanilludropar
3 msk OTA haframjöl, malað
150 g dökkt súkkulaði
Gerir um 12 stk.

Leiðbeiningar

1.Látið kókosolíu á pönnu. Þegar hún hefur bráðnað bætið þá kínóa saman við og ristið í 5 mínútur. Takið af hitanum og bætið 1 tsk af hlynsírópi saman við. Blandið vel saman í 30 sekúntur.
2.Hrærið saman hnetusmjör, hlynsíróp og vanilludropa. Bætið malaða haframjölinu saman við og að lokum ristuðu kínóa
3.Mótið í kúlur og látið í ísskáp í 15 mínútur.
4.Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og húðið orkukúlurnar með því.
Færslan er unnin í samstarfi við OTA SOLGRYN

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.