

| 6 stk brauðbollur (fást frosnar í matvöruverslunum) | |
| 2 dl rifinn Mozzarellaostur frá MS | |
| 200 g rjómaostur með graslauk og lauk frá MS | |
| 100 g smjör frá MS | |
| 2 tsk Dijon sinnep | |
| 2 tsk ítalskt krydd | |
| 1 tsk sjávarsalt | |
| 1 tsk svartur pipar | |
| vorlaukur til skrauts |
Þessar rjómaostafylltu brauðbollur slá ávallt í gegn. Þeim svipar til hvítlauksbrauðs, nema þær eru bara svo miklu meira, betra og skemmtilegra. Fljótlegar í gerð og einfalt að taka í sundur. Það er alveg ráðlegt að tvöfalda uppskriftina því þessar hverfa hratt.
| 1. | Afþýðið brauðbollurnar og skerið 3-4 línur í brauðbollurnar langsum og þversum. Látið skurðinn ná neðarlega í bollurnar, en þó ekki alveg niður. |
| 2. | Blandið rjómaosti og mozzarella vel saman í skál og blandið vel saman. Látið blönduna í skurðinn á brauðbollunum. |
| 3. | Bræðið smjörið og látið Dijon sinnep, ítalskt krydd, sjávarsalt og svartan pipar saman við. Dreypið smjörblöndunni yfir ostinn á brauðbollunum með skeið. |
| 4. | Setjið á bökunarplötu og bakið við 180°c í um 15 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn og brauðbollurnar eru farnar að fá gylltan lit. |

Leave a Reply