Innihaldslýsing

6 stk brauðbollur (fást frosnar í matvöruverslunum)
2 dl rifinn Mozzarellaostur frá MS
200 g rjómaostur með graslauk og lauk frá MS
100 g smjör frá MS
2 tsk Dijon sinnep
2 tsk ítalskt krydd
1 tsk sjávarsalt
1 tsk svartur pipar
vorlaukur til skrauts
Þessar rjómaostafylltu brauðbollur slá ávallt í gegn. Þeim svipar til hvítlauksbrauðs, nema þær eru bara svo miklu meira, betra og skemmtilegra. Fljótlegar í gerð og einfalt að taka í sundur. Það er alveg ráðlegt að tvöfalda uppskriftina því þessar hverfa hratt.

Leiðbeiningar

1.Afþýðið brauðbollurnar og skerið 3-4 línur í brauðbollurnar langsum og þversum. Látið skurðinn ná neðarlega í bollurnar, en þó ekki alveg niður.
2.Blandið rjómaosti og mozzarella vel saman í skál og blandið vel saman. Látið blönduna í skurðinn á brauðbollunum.
3.Bræðið smjörið og látið Dijon sinnep, ítalskt krydd, sjávarsalt og svartan pipar saman við. Dreypið smjörblöndunni yfir ostinn á brauðbollunum með skeið.
4.Setjið á bökunarplötu og bakið við 180°c í um 15 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn og brauðbollurnar eru farnar að fá gylltan lit.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við MS

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.