Innihaldslýsing

700 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
1/2 box Philadelphia rjómaostur með hvítlauk og kryddjurtum
10 sneiðar parmaskinka, t.d. Gran Brianza Prosciutto Di Parma
1 púrrulaukur, skorinn í sneiðar
2 hvítlauksrif, pressuð
2 rauðar paprikur, smátt skornar
smjör
4 dl matreiðslurjómi
1 msk timían
1 tsk paprikukrydd
salt og pipar
rifinn mozzarellaostur
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Setijð um 1 msk af rjómaosti á hvert kjúklingalæri. Vefið þau utanum rjómaostinn og svo parmaskinku yfir kjúklinginn. Setjið í ofnfast mót.
2.Setjið smjör í pott og léttsteikið púrrulauk, hvitlauk og papriku. Látið matreiðslurjóma, timían, paprikukrydd, salt og pipar saman við og látið malla við vægan hita í um 5 mínútur.
3.Hellið sósunni yfir kjúklinginn og stráið mozzarellaosti yfir (má sleppa).
4.Eldið í 200°c heitum ofni í um 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.