Innihaldslýsing

1 1/2 bolli fínrifinn pecorino ostur
1 bolli fínrifinn parmesan
1 msk svartur pipar
300 g De Cecco spaghetti
2 msk extra virgin ólífuolía frá Philippo Berio

Leiðbeiningar

1.Hitið vatn í rúmgóðum potti. Þegar suðan er komin upp setjið sjávarsalt þar í. Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á pakkningu.
2.Setjið ostana saman í skál ásamt svörtum pipar og bætið smá vatni saman við svo úr verði þykkt mauk.
3.Rétt áður en pastað er fulleldað setjið pastað á pönnu ásamt smá pastavatni og bætið ostamaukinu saman við. Hrærið stöðugt í 1-2 mínútur.
4.Setjið pasta á disk og rífið parmesan og pecorino ost yfir.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.