Innihaldslýsing

250g fyllt tortellini soðið samkvæmt leiðbeiningum
1 msk olía
400g kjúklingalundir eða bringur skornar í bita
100g ferskir sveppir í sneiðum
100g ferskt spínat
kjúklingakrydd eftir smekk
150g rifinn ostur með pipar frá Örnu
Þetta er fullkominn gúrm pastaréttur sem gaman er að bjóða í miðri viku en sómir sér einnig vel í matarboði. Hann er ótrúlega fljótlegur og einfaldur og inniheldur ekki mörg hráefni. Ég nota kjúklingalundir með pastanu en einnig mætti nota kjúklingabringur. Það gerir mjög mikið fyrir réttinn að nota rifna ostinn með pipar frá Örnu...

Leiðbeiningar

1.Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum en fullsjóðið ekki alveg
2.Skerið kjúklinginn í bita og steikið hann uppúr olíunni og kryddið með kjúklingakryddi.
3.Bætið sveppum og spínati saman við og brúnið með kjúklingnum.
4.Setjið sósuna út á pönnuna og slökkvið. Ef pannan má fara í ofn getið þið sett ostinn núna yfir og beint í ofn en ef ekki þarf innihald pönnunnar að fara í eldfast mót og mozzarellaosturinn fer þá þar yfir.
5.Bakið í ofni í 15 mín. Gott er að klára síðustu mínúturnar með grillið í gangi.

Þetta er fullkominn gúrm pastaréttur sem gaman er að bjóða í miðri viku en sómir sér einnig vel í matarboði. Hann er ótrúlega fljótlegur og einfaldur og inniheldur ekki mörg hráefni. Ég nota kjúklingalundir með pastanu en einnig mætti nota kjúklingabringur.

Það gerir mjög mikið fyrir réttinn að nota rifna ostinn með pipar frá Örnu ofan á. Bragðið verður alveg sérstaklega gott þegar piparinn bætist við.

Það er hægt að flýta fyrir sér og nota pönnu sem þolir að fara í ofn en einnig má nota millistærð af eldföstu móti.

Þessi færsla er unnin af Völlu í samstarfi við Örnu, mjólkurvinnslu í Bolungarvík

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.