Uppskriftin er aðlöguð eftir uppskrift af vefsíðunni Pinchofyum
1 sæt kartafla | |
250 g ricotta ostur | |
1/2 dl parmesan ostur, rifinn | |
1 1/2 tsk salt | |
140 g hveiti | |
120 g smjör | |
80 ml rjómi | |
2 hvítlauksrif, pressuð | |
5-6 blöð af ferskri salvíu | |
1 tsk sjávarsalt | |
parmesanostur |
Hér er á ferðinni skemmtileg útgáfa að hinum vinsæla rétti gnocchi þar sem við notum sætar kartöflur í stað hinna hefðbundu. Klikkar ekki.
1. | Stingið í kartöfluna á nokkrum stöðum með gaffli. Setjið í 200°c heitan ofn í um klukkustund eða þar til hún er orðin mjúk. |
2. | Skafið innanúr kartöflunni og setjið í skál. Bætið ricotta, parmesanosti og salti út í og stappið saman. Bætið hveitinu smátt og smátt saman og hnoðið. Hættið þegar blandað er hætt að vera klístruð. |
3. | Gerið smá hleif úr deiginu og skerið í sneiðar. Rúllið út og skerið síðan. |
4. | Setjið bitana í soðið vatn. Þegar þeir fara að fljóta upp á yfirborðið þá eru þeir tilbúnir. Takið úr vatninu. Hér er hægt að stoppa og láta í kæli eða frysti og steikja síðar. |
5. | Setjið smjörið á pönnu og hitið við meðalhita. Steikið nú gnocchi á pönnunni (smá hluta í einu). |
6. | Þegar þið hafið steikt alla bitana setjið þá á pönnuna og bætið salvíu, hvítlauk og salti og steikið í nokkrar mínútur til viðbótar. |
7. | Takið af hitanum og látið kólna lítillega. Bætið þá rjómanum og parmesanosti saman við. |
8. | Smakkið til með salti, pipar og jafnvel smá sítrónusafa og berið fram strax. |
Leave a Reply