Innihaldslýsing

225 ml eggjahvítur (ca. 6 stk)
330 g flórsykur
1 1/2 tsk hvítvínsedik
2 tsk maizenamjöl
4 dl rjómi, þeyttur
250 g hindber
2 msk pistasíuhnetur, saxaðar
Falleg hátíðarkaka sem mun slá í gegn!

Leiðbeiningar

1.Stillið ofninn á 160°c.
2.Setjið eggjahvíturnar í skál og þeytið á mesta styrk í 2 mínútur. Bætið þá sykrinum saman við, einni skeið í einu. Hrærið í 5 mínútur til viðbótar eftir að allur sykurinn er kominn í.
3.Bætið ediki og maizenamjöli saman við og hrærið áfram í 2 mínútur.
4.Notið 22 cm form til að teikna nokkra hringi á smjörpappír. Setjið marengsinn inn í hringinn með sprautupoka eða skeið.
5.Dýfið hnífsoddi í sírópið og dragið línur í marensinn. Mér finnst gott að gera bara smá og eiga síróp eftir til að láta yfir marengsinn þegar hann er bakaður.
6.Setjið marengsinn inn í ofninn og lækkið hitann strax í 120°c og bakið í 70 mínútur eða þar til hann er orðinn stökkur að utan.
7.Takið úr ofninum, látið þeyttan rjóma, síróp og pistasíuhnetur yfir allt.
8.Slökkvið á ofninum og látið pavlovuna vera í lokuðum ofninum þar til hann hefur kólnað alveg. Gott að gera þetta kvöldinu áður.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.