Innihaldslýsing

2 sætar kartöflur
1 msk Oscar's kjúklingakraftur
1 Philadelphia rjómaostur
250 ml matreiðslurjómi
1 púrrulaukur, sneiddur
1-2 gulrætur, skornar smátt
1/2 - 1 laukur, saxaður
3-4 hvítlauksrif, smátt söxuð
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Skerið kartöflurnar í teninga og sjóðið þannig að vatnið fljóti yfir þær.
2.Takið þær úr pottinum og setjið í matvinnsluvél ásamt vatninu sem þær voru soðnar úr. Bætið við vatni eftir þörfum þar til að rétt þykkt hefur náðst (mat hvers og eins). Setjið síðan í pott ásamt kjúklingakrafti.
3.Setjið olíu á pönnu og léttsteikið grænmetið. Bætið út í pottinn og hitið.
4.Látið þá rjómaost og rjóma saman við og hitið við vægan hita og hrærið þar til rjómaosturinn hefur blandast vel saman við.
5.Skerið beikonið í litla bita og steikið á pönnu.
6.Setjið súpuna i skálar. Toppið með t.d. mozzarellaosti og beikoni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.