

| 2 dósir (4 andalæri) Confit de Canard frá Valette | |
| sjávarsalt | |
| svartur pipar | |
| rósmarín | |
| 2 pokar salatblanda | |
| 1 sæt kartafla | |
| 1 granatepli |
Fyrir 4
| 1. | Takið andalærin úr dósunum og setjið í ofnfast mót með skorpuna upp. Kryddið með sjávarsalti, svörtum pipar og rósmarín. Látið í 180°c heitan ofn í um klukkustund. Aukið hitann undir lok eldunartímans svo skorpan verði stökk. |
| 2. | Skerið sætu kartöfluna í litla bita. Hitið olíu á pönnu og steikið sætu kartöfluna þar til kartöflurnar eru farnar að mýkjast. Saltið og piprið. |
| 3. | Setjið salatið í skál. Látið fræin úr granateplinu þar yfir og þá sætu kartöflurnar. |
| 4. | Rífið andalærin niður og setjið yfir allt. Blandið vel saman. |
| 5. | Setjið á disk og berið fram með volgri beikon vinagrette. |

Leave a Reply