4 msk ólífuolia | |
250 g sveppir, sneiddir | |
sjávarsalt | |
2 skarlottlaukar, smátt saxaðir | |
500 g spaghetti | |
120 ml rjómi frá Gott í matinn | |
1/2 búnt steinselja, smátt skorin | |
1/2 sítróna, safi og fínrifinn börkur | |
2 msk smjör frá MS | |
1 dl rifinn parmesanostur | |
svartur pipar |
Fyrir 4
1. | Látið olíu á pönnu og steikið sveppina í um 5 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir og stökkir á báðum hliðum. Saltið og bætið skarlottlauknum saman við og steikið þar til hann er farinn að mýkjast. . |
2. | Sjóðið pasta í saltvatni þar til það er farið að mýkjast en ekki orðið alveg mjúkt. Takið pastað með töngum og færið yfir á pönnuna, ásamt 240 ml af pastavatni og rjóma. Látið malla við miðlungshita í nokkrar mínútur þar til sósan er farin að þykkna. |
3. | Takið af hitanum og bætið sítrónusafa, sítrónuberki, steinselju og parmesan saman við. |
4. | Piprið ríflega og njótið vel. |
Leave a Reply