Innihaldslýsing

40 g OTA haframjöl
160 ml soðið vatn
85 g hveiti
1/2 tsk múskat
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk lyftiduft
1/4 tsk salt
60 g mjúkt smjör
100 g sykur (ég notaði hrásykur)
1 stórt egg
80 ml hlynsíróp
1/2 tsk vanilludropar
Kókos- og pekanhnetukaramella:
80 ml hlynsíróp
60 g mjúkt smjör
1 dl kókosmjöl
1 dl pekanhnetur, ristaðar og saxaðar
1/2 tsk vanilludropar
2 msk sýrður rjómi
Þessi kaka sem er upprunarlega af Food52 þaut strax á topplistann enda einföld og ólýsanlega góð!

Leiðbeiningar

1.Setjið OTA haframjölið í skál og hellið heitu vatni yfir. Hrærið lítillega saman og látið standa.
2.Blandið þurrefnum saman í skál.
3.Hrærið smjör og sykur vel saman eða þar til blandan er orðin létt og ljós.
4.Bætið eggi saman við og hrærið vel.
5.Bætið hlynsírópi og vanillu saman við.
6.Látið helming af þurrefnum saman við og hrærið varlega.
7.Bætið haframjölsblöndunni saman við og síðan afganginn af þurrefnum. Hrærið saman í 30 sek.
8.Smyrjið form og látið deigið þar í. Bakið í 180°c heitum ofni í um 30 mínútur.
9.Karamella: Látið smjör og hlynsíróp í pott og hitið rólega. Leyfið að búbbla í um 2 mínútur. Takið af hitanum og setjið sýrðan rjóma og vanilludropa saman við.
10.Bætið pekanhnetum og kókosmjöli saman við.
11.Takið kökuna úr ofni og hellið karamellunni yfir.
Færslan er unnin í samstarfi við OTA

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.