Setjið smjör og mjólk í pott og bræðið saman við lágan hita. Takið af hitanum og geymið þar til blandan er orðin fingurvolg. Bætið þurrgeri og sykri saman við og geymið í 5 mínútur. Bætið hinum hráefnunum saman við. Hnoðið í nokkrar mínútur. Setjið rakan klút yfir skálina og látið hefast í 60 mínútur eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð. Setjið deig á hveitistráð borð og hnoðið lítillega. Fletjið út og látið hnetusmjör yfir botninn og hellið síðan karamellusósunni yfir allt. Rúllið upp og skerið niður. Látið í form og bakið í 175°c heitum ofni í 15 mínútur. Leyfið að kólna lítillega og látið þá glassúr og karamellusósu ef það var afgangur af henni yfir snúðana.
Fylling
3-4 msk hnetusmjör
3-4 msk Dumle karamellusósa
Glassúr: Flórsykur, Cadbury kakó, kaffi og vanilludropar. Öllu blandað saman.
Dumle karamellusósa
1 poki Dumle karamellur
2 msk rjómi
Setjið karamellur og rjóma saman í pott og hitið við vægan hita. Þegar karamellurnar hafa blandast saman við rjómanum takið af hitanum og leyfið að kólna lítillega.
Leave a Reply