Innihaldslýsing

150 g Parmaskinka
100 g parmesan ostur
3 stór egg
350 g spaghetti
3 hvítlauksrif
50 g smjör
sjávarsalt og pipar
  Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leiðbeiningar

1.Skerið parmaskinkuna í bita.
2.Fínrífið parmesan ostinn.
3.Léttþeytið eggin saman í skál og bætið svörtum pipar saman við.
4.Hitið vatn að suðu og bætið 1 tsk af salti útí.
5.Sjóðið spaghetti þar til það er eldað
6.Takið hýðið af hvítlauknum og kremjið með hnífsblaði.
7.Hitið 50 g af smjöri á pönnu og látið parmaskinkuna og hvítlaukinn saman við. Steikið á lágum hita í um 5 mínútur og hrærið reglulega.
8.Takið eldað spaghetti og látið á pönnuna með hvítlauknum og parmaskinkunni.
9.Látið meirihlutann af rifnum parmesan saman við eggin og hrærið.
10.Takið hitann af pönnunni og hellið eggjablöndunni saman við. Lyftið pastanu upp með töngum og blandið þannig varlega saman við eggin. Þetta þarf að gera varlega og ekki má vera hiti undir pönnunni því annars verða eggin að eggjahræru.
11.Bætið nokkrum matskeiðum af pastavatninu saman við.
12.Setjið pasta á disk og stráið rifnum osti og svörum pipar saman við.

 

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.