Innihaldslýsing

500 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
1 laukur, smátt saxaður
2-3 hvítlauksrif, smátt söxuð
3 msk taco krydd
1 msk cumin
1 msk oregano
1 tsk cayenne pipar eða 2 tsk chipotle
1 dós saxaðir tómatar
1 líter heitt vatn + 2 msk fljótandi kjúklingasoð frá Oscar
1 dl rjómi
200 g Philadelphia rjómaostur
50 g rifinn cheddar ostur
1 box kirsuberjatómatar
1 rauð paprika
safi úr 1 límónu
Hversu huggulegt er að gæða sér á bragðmikilli súpu yfir vetrartímanum. Þessi súpa er ofureinföld í gerð og vekur mikla lukku viðstaddra.

Leiðbeiningar

1.Skerið kjúkling í bita og steikið á pönnu þar til fulleldaður. Takið af pönnunni/potti og geymið.
2.Steikið lauk og papriku í 1 mínútu í potti og bætið hvítlauk saman við og steikið í um 30 sek ásamt kryddum.
3.Látið heitt vatn og kjúklingasoð saman við og hitið að suðu.
4.Lækkið hitann og bætið rjóma og rjómaosti saman og látið malla í smá stund.
5.Bætið tómötum og kjúklingi saman við og látið malla áfram í 15 mínútur.
6.Setjið 1-2 dl af cheddar osti út í og smakkið ti. með salti og pipar og límónusafan
7.Berið fram með t.d. nachos, sýrðum rjóma,rifnum osti, kóríander og chilí.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.