Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes
700 g lambakjöt | |
2 tsk hveiti | |
1 1/2 msk cumin (ath ekki kúmen) | |
90 ml dökk sojasósa, t.d. frá Blue dragon | |
60 ml hrísgrjónaedik, t.d. Rice vinegar frá Blue dragon | |
1 msk sykur | |
2 eggaldin, skorin í bita | |
salt og pipar | |
60 ml grænmetisolía | |
2 cm ferskt engifer, skorið í þunna strimla | |
3 rauð chillí, fræhreinsuð og smátt söxuð | |
1 búnt vorlaukar, skornir smátt | |
1/2 búnt ferskt kóríander, saxað |
1. | Skerið lambakjötið í bita og þerrið. Setjið í skál og bætið hveiti, 1 msk af cumin, helming af sojasósunni, helming af hrísgrjónaedikinu og sykri. Blandið vel saman og marinerið í amk 30 mínútur. |
2. | Skerið eggaldin niður í bita og setjið í skál ásamt afganginum af cuminkryddinu og salti. |
3. | Hellið helming af olíu á pönnu og hitið vel. Steikið eggaldin í um 5 mínútur við háan hita og hrærið af og til í blöndunni eða þar til eggaldinið er farið að brúnast. |
4. | Bætið engifer og 1 msk af sojasósu saman við og steikið í nokkrar mínútur til viðbótar. |
5. | Takið af pönnunni og þerrið. Geymið. |
6. | Hitið pönnuna og bætið þá afganginum af olíunni þar á. |
7. | Steikið kjötið í þremur hlutum á pönnunni. Í um 2 mínútur á hvorri hlið. Endurtakið með afganginn af kjötinu. |
8. | Þerrið kjötið og hellið um helming af olíunni af pönnunni. |
9. | Setjið allt kjötið aftur á heita pönnuna ásamt eggaldin, sojasósu, ediki, chilí, vorlauk og kóríander og veltið saman í nokkrar mínútur. Setjið á disk og berið fram. |
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes
Leave a Reply